Páskanámskeið Skopp
Páskanámskeið 14. – 16. apríl 2025
Boðið er uppá páskanámskeið í Skopp dagana 14. - 16. april, kl.10:00-13:00
Námskeiðslýsing:
Börnin koma og skoppa og leika, fara í klifur, koddaslag, skotboltakeppni, fótbolta og skemmta sér saman í
góðum hópi.
Til þess að námskeiðið fari fram þurfa að lágmarki 10 börn að skrá sig.
Mikilvægt að börnin komi með nesti og í léttum og þægilegum fatnaði. Börnin fá Skopp sokka
og Skopp bol og allir fá svo skemmtilegan glaðning síðasta daginn.
Fyrir hvern?
Fyrir börn 6-12 ára (börn fædd 2013-2019)
Leiðbeinendur
Leiðbeinendur námskeiðanna eru starfsmenn Skopp sem hafa unnið með börnum.
Verð aðeins kr. 16.999.-Skráning hér