After Dark!
Viltu lýsa upp í myrkri? Hoppaðu á lýsandi trampólínum á Skopp After Dark!
Tveir klukkutímar af skoppi, frábær ljósastemning og andlitsmálning.
*Ekki er hægt að nota inneign, gjafabréf eða afsláttarmiða á After Dark.
*Ekki er hægt að nota inneign, gjafabréf eða afsláttarmiða á After Dark.
Þú kaupir 10 skipta klippikort og færð það beint í veskið í símanum.
1 par af Skopp sokkum fylgir hverju keyptu klippikorti.
Losaðu þig við vinnuna við það að halda afmælið heima og haltu afmælið hjá okkur þar sem allt er til alls.
Þú þarft einungis að mæta og njóta meðan börnin þjóta.
Trampólíngarðurinn á Dalvegi sem hefur verið einn vinsælasti áfangastaður krakka á öllum aldri í gegnum árin hefur fengið nýtt og alíslenskt nafn. Nýja nafnið er einfalt og auðskiljanlegt - Skopp. Auk nýja nafnsins mun Skopp frumsýna ný og spennandi tæki fyrir alla aldurshópa á árinu 2023.
Þrjú ný og skoppandi skemmtileg tæki líta dagsins ljós á árinu. Gagnvirkur og uppblásinn fótboltavöllur, nýr og glæsilegur klifurveggur og síðast en ekki síst - magnað ævintýraland ætlað yngsta aldurshópnum. Fótboltavöllurinn er sá fyrsti sinnar tegundar á Íslandi. Spilað er á uppblásinni dýnu og skotið á gagnvirk skotmörk sem eru staðsett inni í mörkunum. Nýji klifurveggurinn inniheldur þrjár miserfiðar klifurleiðir og er hannaður í samstarfi við Benjamin Mokry, framkvæmdarstjóra Klifurhússins. Þar sem gamli klifurturninn var áður mun svo rísa stórglæsilegt ævintýraland fyrir yngri aldurshópa. Framleiðandi ævintýralandsins er hollenskt fyrirtæki sem er fremst á sínu sviði í hönnun öruggra leiktækja fyrir börn.
„SKOPP ER AÐ HOPPA, VELTAST EÐA RENNA OG LYFTAST ÖÐRU HVERJU FRÁ JÖRÐU“